Ke$ha - Dirty LoveKe$ha sendi frá sér plötuna Warrior  í lok árs 2012, en á henni má meðal annars finna lögin Die Young og Crazy Kids sem hafa bæði hlotið gífurlega spilun hér á landi.

Söngkonan fagnaði nýju ári með því að gefa út fjórðu smáskífuna af plötunni og tilkynnti jafnframt um það að hún væri á leið í meðferð við átröskun til að læra að elska sjálfa sig aftur,  en kröfurnar í stjörnuheiminum um að líta vel út eru oft gífurlegar.