Skylar Grey - Coming Home Pt. IIBandaríska söngkonan Skylar Grey kemur til með að fagna 28 ára afmæli sínu síðar í mánuðinum, en hún ásamt krökkunum í Diddy – Dirty Money slógu eftirminnilega í gegn árið 2010 með laginu Coming Home sem hlaut tvöfalda platinum sölu í Bandaríkjunum.

Nú er Skylar hinsvegar mætt ein síns liðs við flygilinn með “part tvö“ af laginu, en myndbandið við það er hreint magnað og fjallar það um heimkomu hermanna eftir stríð.