Lorde - Tennis Court (Flume Remix)Það hefur svo sannarlega færst í aukana undanfarið að gerð séu remix eða endurgerðir af lögum eftir fræga tónlistarmenn og vill það oft svo til að remixin verði vinsælli heldur en upphaflegu útgáfurnar.

Hér er á ferðinni remix af laginu Tennis Court með söngkonunni Lorde, en maðurinn á bakvið remixið er Harley Edward Streten eða Flume eins og hann kallar sig, en hann er 22 ára gamall pródúser frá Ástralíu sem er einna hvað þekktastur fyrir útgáfuna sína af laginu You & Me með Disclosure.