Justin Bieber - Hard 2 Face RealityÞað getur oft verið erfit að takast á við raunveruleikann og það sýnir Kanadíski söngvarinn Justin Bieber okkur í nýjasta lagi sínu, Hard 2 Face Reality ásamt Jason Boyd eða Poo Bear eins og hann kallar sig.

Hinn tvítugi söngvari hefur átt í miklu basli undanfarið og hefur hlotið mikla neikvæða athygli fyrir slæma hegðun sína sem ætti ekki að hafa farið framhjá neinum, en menn vilja meina að lagið fjalli um sambandsslit Bieber’s og söngkonunnar Selena Gomez.