Austin Mahone - All I Ever NeedUngstyrnið Austin Mahone hefur heldur betur komið sér á kortið eftir að hann sendi frá sér lagið MMM Yeah ásamt rapparanum Pitbull fyrr á þessu ári.
Nú er hann hinsvegar búinn að gefa út nýtt lag í allt öðrum stíl, en tónlistarmenn á borð við Usher, Justin Bieber og fleiri hafa tileinkað sér þennan R&B stíl upp á síðkastið og er lagið sem nefnist All I Ever Need önnur smáskífan af plötunni The Secret sem kemur út í lok mánaðarins.