Alexander Rybak - Into A FantasyAlexander Rybak fæddist í Rússlandi árið 1986 en flutti til Noregs aðeins fjögurra ára gamall og sló í gegn árið 2009 með laginu Fairytale þegar hann sigraði Eurovision fyrir hönd Noregs og sló stigamet í keppninni sem stendur enn.

Alexander hefur ekki látið mikið fyrir sér fara eftir keppnina en nú hefur hann sent frá sér nýtt lag sem nefnist Into A Fantacy, en lagið er titillag myndarinnar How To Train Your Dragon 2, sem frumsýnd verður hér á landi á morgun, 18. júní.