Kendrick Lamar - iNýjasta lagið frá rapparanum Kendrick Lamar er fengið lánað frá laginu That Lady sem The Isley Brothers sendu frá sér árið 1973, en hér setur Kendrick það í endurbættan búning með nýjum texta.

Lagið sem nefnist i er fyrsta smáskífan af væntanlegri plötu Kendrick sem hefur ekki fengið nafn, og áætlað er að hún komi út síðar á þessu ári, en að sögn rapparans komu einhverjar tafir upp sem gætu seinkað útgáfu plötunnar, en Kendrick sagði jafnframt að hann væri einn í öllum lögunum á plötunni því hann hefur svo mikið að segja og sé því einfaldlega ekki pláss fyrir aðra.