James Blunt - When I Find Love AgainHjartaknúsarinn James Blunt virðist hafa fundið ástina en hann og Sofia Wellesley giftu sig nú á dögunum og tók hann upp myndband við nýjasta lagið sitt á meðan þau hjónin voru í brúðkaupsferð á Spáni.

Lagið sem nefnist When I Find Love Again má finna á plötunni Moon Landing: Apollo Edition sem er einsskonar endurútgáfa plötunnar Moon Landing sem Blunt gaf út í lok síðasta árs en nýja útgáfan inniheldur öll lögin af gömlu plötunni ásamt fimm nýjum lögum en platan kemur út þann 4. nóvember næstkomandi.