Olly Murs - Look at the SkyÞað ætlar ekkert að láta af vinsældum söngvarans Olly Murs en fjórða platan hans Never Been Better skaust beint á toppinn á breska vinsældarlistanum eftir að hún kom út í nóvember síðastliðnum og hefur kappinn verið að gera það gott síðustu daga með laignu Up ásamt Demi Lovato.

Það vekur sérstaka athygli að nýjasta smáskífan sem hann ákveður að gefa út á heimsvísu má aðeins finna á sérstakri viðhafnaútgáfu af plötunni hans sem er aðeins fáanleg í Japan, en lagið sem heitir Look At The Sky var einmitt samið af japanska tónlistarmanninum Hachidai Nakamura.