Becky G - Break A SweatRebbeca Marie Gomez eða Becky G er átján ára söngkona sem kemur frá Bandaríkjunum en hún er þekktust fyrir lögin Shower og Can’t Stop Dancin’ sem bæði komu út á síðasta ári.

Becky er nú að leggja loka hönd á aðra plötuna sína sem er sögð koma út í lok þessa árs eða í byrjun þess næsta og er Break A Sweat fyrsta lagið sem við fáum að heyra af plötunni.