Lagið Diamonds sem söngkonan Rihanna gaf út fyrir stuttu síðan hefur heldur betur náð miklum vinsældum, en það er fyrsta smáskífan af sjöundu plötunni sem hún sendir frá sér,  Unapologetic en platan kemur út á mánudaginn.

Hér er hinsvegar á ferðinni glæný útgáfa af þessu frábæra lagi, en Rihanna fékk rapparann Kanye West með sér í lið við endurgerð lagsins, en margir vilja meina að hún sé jafnvel betri en upprunlega útgáfan.