Woodkid - I Love YouYoann Lemoine eða Woodkid er 29 ára gamall söngvari og tónlistarmyndbandaleikstjóri sem kemur frá Frakklandi, en hann hefur leikstýrt myndböndum fyrir tónlistarmenn á borð við Katy Perry, Taylor Swift og Drake.

Lagið I Love You er þriðja smáskífan af plötunni The Golden Age sem kemur út þann 18. mars næstkomandi og er myndbandið sem Woodkid  leikstýrir sjálfur að mestum hluta tekið upp hér á landi og skartar það náttúru Íslands í öllu sínu veldi.

Woodkid er annar Frakkinn á stuttum tíma sem tekur upp tónlistarmyndband hér á landi en David Guetta gerði slíkt hið sama í lok síðasta árs er myndbandið við lagið She Wolf var tekið upp.