Egill Freydal er sautján ára gutti úr Laugadalnum í Reyjavík og gengur í FÁ. Freydal hefur verið að búa til tölvutónlist í næstum þrjú og hálft ár og eru framfarir hans ótrúlegar. Hann byrjaði með nafnið Dirty midget en breytti því síðan yfir í Freydal þegar að tónlistinn hans var orðin vinsælli.

Nýjasta lag Freydals, Field hefur rosalega margt að segja um hann en hann hefur unnið að því frá september 2010 og minnir lagið hann einna helst á frænda sinn sem lést fyrir ári síðan.