Eydís Sara Ágústsdóttir er sextán ára stelpa úr Hafnarfirðinum og er í Unglingakór Hafnarfjarðarkirkju.
Hún hefur veirð að syngja frá tveggja ára aldri en hefur þó aldrei lagt hendur á söngnám. Eydís hefur samið sín eigin lög og texta og hefur það gengið vonum framar. Hún notar öll tækifæri sem gefast til að koma fram og hefur meðal annars komið fram með Frostrósum og tekur þátt fyrir hönd skólans síns í söngkeppni Samfés sem fer fram í byrjun mars.