Helga Hlín Stefánsdóttir er fjórtán ára stelpa sem býr Ártúni og gengur í Árbæjarskóla. Hún er búin að vera í kór í Langholtskirkju frá fjögurra ára aldri og hefur mikinn áhuga á söng og æfir einnig jazzballett.
Helga flutti lagið Von sem Hrafnhildur Svala þýddi við lagið Rain með Jet Black Joe  í undankeppni fyrir Samfés í skólanum sínum og bar sigur úr bítum og keppir fyrir hönd Árbæjar í Samfés.