Freysteinn Halldórsson er fimmtán ára strákur búsettur á Hvolsvelli og gengur undir nafninu Proxy Figura.
Freysteinn gaf út á dögunum nýjan bootleg pakka sem inniheldur fjórtán lög sem flestir ættu að þekkja en þar má nefna lögin Titanium, Wild Ones og Never Will Be Mine.

Freystein hefur fengið stuðning frá nokkrum af þekktustu plötusnúðum heims en þar á meðal eru Dirty South, Thomas Gold, Jerry Rekonius og Romain G.
Nýlega stóð hann í viðræðum við Dirty South um að fá að gefa út remix af lagi eftir hann og Thomas Gold ásamt Kate Elsworth sem heitir Alive og er það væntanlegt á næstunni.