Nú geta Mika aðdáendur glaðst því það er komið út nýtt lag með kappanum sem nefnist Make You Happy. Þetta er fyrsta lagið sem Mika sendir frá sér síðan 2009.

Lagið er tekið af væntanlegri plötu Mika sem hefur fengið nafnið The Origin of Love en hún kemur út síðar á þessu ári.