Hafsteinn Thor Guðjónsson eða Haffi Haff eins og við þekkjum hann flest sem er loksins kominn með nýtt lag eftir langa bið.

Lagið sem er ekta sumar-hittari er samið af Haffa sjálfum en hann samdi einnig textann. Það voru svo strákarnir í StopWaitGo sem pródúseruðu lagið.

Kappinn er staddur í Maui að skemmta sér og öðrum en hann er væntanlegur til landsins í byrjun ágúst og ætlar þá að spila um allt land.