BFG er ný íslensk rapp hljómsveit sem samanstendur af bræðrunum Jóhanni og Björgvini Karlssonum.

Þeir hafa báðir verið að rappa frá því að þeir voru litlir og var Björgvin eða Bórilla eins og hann kallar sig m.a. í Dáðadrengjum.

Nýjasta lagið frá strákunum nefnist Það Sem Þú Vilt og eru mörg önnur lög á leiðinni frá þessum frábæru bræðrum.