Conor Maynard - Animal ásamt WileyHann var valinn besti nýliði ársins af MTV og hefur verið að gera góða hluti upp á síðkastið með laginu sínu Turn Around.

Nú hefur þessi tvítugi söngvari sent frá sér myndband við nýjustu smáskífuna af plötunni Contrast sem kom út í sumar, en það er rapparinn Wiley sem er með Conor í laginu sem nefnist Animal.