Redfoo - Bring Out The BottlesÞað kannast flestir ef ekki allir við dúóið LMFAO, en þeir hafa gert garðinn frægan með lögum á borð við Party Rock og Sexy and I Know It og voru þau voru með vinsælli lögum ársins 2011.

Hinn 37 ára gamli Redfoo var annar meðlimur þessara frábæra tvíeykis sem hóf göngu sína árið 2006, en þeir SkyBlu tilkynntu það í lok síðasta árs að þeir höfðu ákveðið að slíta samstarfi sínu og fara hvor sína leið, aðdáendum þeirra til mikils ama en heimildir herma að talsverður rígur hafi verið á milli þeirra.

Nú er Redfoo hinsvegar búinn að taka fram hljónemann þar sem frá var horfið og flytur okkur þetta frábæra lag sem einkennist af miklum LMFAO stíl, en lagið sem nefnist Bring Out The Bottles er fysta smáskífan af komandi plötu Redfoo, I’m Getting Drunk! sem má vænta síðar á þessu ári.