Sísý Ey - Ain't Got NobodyHljómsveitin Sísí Ey var stofnuð árið 2011 af Carmen Jóhannsdóttur og systrunum Elínu, Elísabetu og Sigríði Eyþórsdætrum og bættist svo plötusnúðurinn og pródúserinn Friðfinnur Oculus við síðar meir og náðu þau í sameiningu og skapa eitthvað sérstakt og öðruvísi sem setti ný viðmið í tónlist á Íslandi.

Það nýjasta frá krökkunum er lagið Ain’t Got Nobody og  má segja að það hafi verið lagið sem kom þeim á kortið, en það hefur verið gífurlega vinsælt hér á landi upp á síðkastið.

Glænýtt myndband við lagið frumsýnt í dag og eru það þeir Daníel Ágúst, DJ Margeir, Jón Atli, Lárus Páll og Magnús Jónsson sem koma fram í myndbandinu sem leikstýrt var af Guðrúnu Helgu Sváfnisdóttur