Fergie - A Little Party Never Killed Nobody (All We Got) ásamt Q-Tip og GoonRockÞað þarf vart að kynna söngkonuna Stacy Ann Ferguson eða Fergie eins og hún kallar sig en hún hefur verið að gera það gott með hljómsveitinni The Black Eyed Peas sem koma til með að gefa út nýja plötu síðar á þessu ári.

Hér er Fergie hinsvegar á ferðinni með glænýtt lag ásamt rapparanum Q-Tip úr A Tribe Called Quest en lagið sem ber nafnið A Little Party Never Killed Nobody (All We Got) er pródúserað af GoonRock.

Þetta sveiflukennda lag er eitt af fjölmörgum lögum sem finna má í myndinni The Great Gatsby sem fjallar rithöfundinn Nick Carraway sem fer frá miðvesturríkjum Bandaríkjanna til New York vorið 1922, þegar djassinn og hið ljúfa líf ræður ríkjum, en myndin verður frumsýnd hér á landi í maí.