Sub Focus - Endorphins ásamt Alex ClarePródúserinn Nick Douwma eða Sub Focus eins og hann kallar sig hefur verið í bransanum í um tíu ár, en á ferlinum hefur hann unnið með listamönnum á borð við Alice Gold, Pendulum, The Prodigy, Chase & Status og Example.

Nýjasta lagið frá þessum 31 árs gamla Breta nefnist Endorphins og er það enginn annar en Alex Clare sem er með honum í laginu, en það má finna á vænanlegri plötu Sub Focus sem kemur út síðar á þessu ári.