Major Lazer – Lose Yourself ásamt Moska og RDX
Pródúserarnir og plötusnúðarnir Diplo, Jillionaire og Walshy Fire í Major Lazer komu fram á Sónar Reykjavík tónlistarhátíðinni sem fór fram í Hörpu fyrr í mánuðinum við góðar undirtektir gesta hátíðarinnar.
Strákarnir sendu frá sér smáplötuna Apocalypse Soon fyrir stuttu og er lagið Lose Your Self nýjasta smáskífan af henni, en það eru þeir Moska og RDX sem eru með Major Lazer í laginu.