Tiësto - Wasted ásamt Matthew KomaLagið Red Lights situr á vinsældarlistum út um allan heim, það er úr smiðjum hins 45 ára gamla plötusnúðs Tijs Michiel Verwest eða Tiësto eins og við þekkjum hann flest sem.

Lagið sem nefnist Wasted er önnur smáskífan af væntanlegri plötu Tiësto sem kemur út síðar á þessu ári og er það söngvarinn Matthew Koma sem syngur í laginu, en hann hefur verið að gera það gott með laginu Find You með Zedd.