MAGIC! - Let Your Hair DownKanadíska reggae fusion hljómsveitin MAGIC! kom eins og stormsveipur í tónlistarsenuna þegar þeir sendu frá sér lagið Rude í lok síðasta árs en það var eitt vinsælasta lagið hér á landi fyrir ekkert svo alltof löngu síðan.

Nú eru fjórmenningarnir búnir að senda frá sér annað lag sem jafnframt má finna á plötunni Don’t Kill the Magic sem kom út í lok júní síðastliðnum og hefur þegar hlotið mikla athygli, en lagið sem hér um ræðir nefnist Let Your Hair Down.