Fyrir um mánuði síðan fórum við með af stað glæsilegan Þjóðhátíðarleik þar sem þátttakendum gafst tækifæri á að vinna RISA Þjóðhátíðarpakka en hann er sá glæsilegasti og veglegasti sem sést hefur í langan tíma.

Þátttakan var vægast sagt góð og skráðu sig tæplega 5.000 manns til leiks enda til mikils að vinna.

Pakkinn sem um ræðir inniheldur: Volcano Energy, yfir 200 ONE smokka og sleipiefni frá Smokkur.is, gjafabréf út að borða á hverjum degi alla hátíðina frá 900 Grillhús, merktar Þjóðhátíðarpeysur frá Tanna, X.Ray orkudrykk, Pepsi max og Doritos snakk frá Ölgerðinni, helling af allskonar höttum, ljósum, glösum, sólgleraugum og öðru skrani frá Glowogblikk.is, glæsilegt tjald og útilegustóla og síðast en ekkki síst miða á sjálfa Þjóðhátíð og í Herjólf.

Við viljum þakka öllum þeim sem komu að leiknum og ekki síst þeim sem tóku þátt.

Vinningshafinn í Þjóðhátíðarleik Ný Tónlist 2012 er Brynja Dögg Guðjónsdóttir og óskum við henni hjartanlega til hamingju með sigurinn en hún var í skýjunum þegar starfsmaður Ný Tónlist hafði samband við hana fyrr í kvöld.

Við bendum ykkur á að fylgjast sérstaklega vel með á facebook síðunni okkar en innan skamms munum við fara með fleiri skemmtilega leiki í gang og er það til mikils að vinna.

Við vonum að við sjáum ykkur sem flest í Herjólfsdal á Þjóðhátíð 2012, því „Lífið Er Yndislegt“.