Rapparinn 50 Cent eða Curtis James Jackson III eins og hann heitir réttu nafni er mættur til leiks með þrusu gott lag ásamt þeim Dr. Dre og Alicia Keys.

Lagið sem heitir New Day er pródúserað af Dr. Dre og mixað af sjálfum Eminem, en lagið má finna á væntanlegri plötu 50 Cent sem hefur fengið nafnið Street King Immortal en hún kemur út í haust.