Jólalagið Baby It’s Cold Outside er með þekktari dúettum tónlistarsögunnar, en lagið var upphaflega flutt af hjónunum Frank Loesser og Lynn Garland árið 1944 og hefur lifað í hjörtum íbúa heimsins allar götur síðan þá.

Margir hafa gert sína útgáfu af laginu og er sú nýjasta er í flutningi þeirra Cee Lo Green og Christina Aguilera en þau starfa saman sem dómarar í sjónvarpsþáttunum The Voice sem m.a. eru sýndir á SkjáEinum.

Lagið er nýjasta smáskífan af plötunni Cee Lo’s Magic Moment sem kom út í lok október, en lagið All I Need Is Love af sömu plötu hefur þegar notið mikilla vinsælda.