The Wanted - Walks Like RihannaStrákarnir í The Wanted tilkynntu í lok síðasta árs að ætlunin væri að gefa út tvær plötur á þessu ári og önnur ætti að koma út í apríl en hin í lok ársins, það hefur ennþá ekkert bólað á nýrri plötu frá þeim.

Hér eru þeir hinsvegar mættir með nýtt lag sem nefnist Walks Like Rihanna, en þar er vísað í samnefnda söngkonu og hefur texti lagsins  verið gagnrýndur fyrir að vera heldur innihaldslaus.

Það er nóg um að vera hjá þeim Max, Siva, Jay, Tom og Nathan á árinu en í byrjun júní hefur göngu sína nýr raunveruleikaþáttur sem nefnist The Wanted Life og fjallar hann um líf strákanna, en það er American Idol kynnirinn Ryan Seacrest sem sér um gerð þáttanna.