The Wanted - Drunk On LoveMargir héldu að Walks Like Rihanna væri lagið sem strákarnir í The Wanted gæfu út sem sumarsmell sinn þetta árið en þeir eru hvergi nærri hættir og hafa sent frá sér sitt annað lag á rúmum mánuði.

Smáskífan sem nefnist Drunk On Love svipar til lagsins Glad You Came sem kom út með The Wanted árið 2011, en sama ár sendi söngkonan Rihanna lag frá sér sem ber einnig nafnið Drunk On Love.