Mohombi - TourguideSvíinn Mohombi Nzasi færði okkur eitt vinsælasta lag ársins 2010, Bumpy Ride og sló það fjölmörg sölumet víðsvegar um heiminn.

Þessi 26 ára gamli söngvari vinnur nú hörðum höndum að gerð plötu sem kemur út síðar á þessu ári og nefnist fyrsta smáskífan af henni Tourguide, en platan hefur þó ekki ennþá fengið nafn.