One Direction - Best Song EverStrákarnir í One Direction syngja hér um besta lag sem gert hefur verið, eða svo vilja þeir að minnsta kosti meina að sé.

Lagið Best Song Ever er það nýjasta frá þessari hljómsveit sem kemur frá Bretlandi en það má finna á plötunni Where We Are sem kemur út síðar á þessu ári, en þó hefur ekki verið gefið út  hver endanlegur útgáfudagur sé.