50 Cent - Can't Help Myself (I'm Hood)Lagið Can’t Help Myself (I’m Hood) er fjórða smáskífan af plötunni Street King Immortal sem rapparinn 50 Cent ætlaði að senda frá sér í lok ársins 2012, en útkomu hennar hefur verið seinkað tvisvar eftir það og er alls óvíst hvenær platan kemur út.