Macklemore - White Walls ásamt Schoolboy Q og HollisÞað eru ekki margir sem hafa náð að gefa út sex smáskífur af einni og sömu plötunni, en það virðist ekki vera neitt mál fyrir hinn þrítuga rappara, Macklemore sem flestir ættu að þekkja.

Hann sendi frá sér plötuna The Heist í lok síðasta árs og sló hún svo sannarlega í gegn, en á henni má finna lög á borð við Can’t Hold Us og Thrift Shop.

Nýjasta smáskífan af plötunni nefnist White Walls og er það rapparinn Schoolboy Q og söngkonan Hollis sem eru með Macklemore í laginu sem á eflaust eftir að verða vinsælt sem og flest annað sem þessi magnaði tónlistarmaður hefur sent frá sér.