Sam Smith - Stay With MeÞrátt fyrir að vera 21 árs gamall og hafa aðeins sent frá sér þrjú lög hefur Breski söngvarinn Sam Smith vakið heimsathygli, og má segja að hann hafi orðið frægur á einni nóttu eftir að hafa gefið út lagið Lay Me Down og síðar meir Money On My Mind, en hann hafði áður starfað með Disclosure og Naughty Boy við gerð lagana þeirra.

Fyrsta platan sem Sam sendir frá sér ber nafnið In the Lonely Hour, og kemur hún út þann 26. maí næstkomandi og eru forpantanir á plötuni þegar hafnar, en nýjasta smáskífan af henni nefnist Stay With Me.