Robin Schulz – Headlights ásamt Ilsey
Þjóðverjinn Robin Schulz er án efa þekktastur fyrir útgáfur sínar af lögunum Waves og Prayer In C sem voru með vinsælli lögum síðasta sumars hér á landi.
Robin hefur nú hafist handa við gerð annarar plötu sinnar eftir gott gengi þeirra fyrstu sem kom út í september á síðasta ári en lagið Headlights er það nýjasta frá pródúsernum sem kemur til með að fagna 28 ára afmæli sínu í lok mánaðarins.