Omi - Hula HoopÞað var í upphafi ársins sem 29 ára gamall söngvari frá Jamaica, Omar Samuel Pasley eða OMI eins og hann kallar sig kom almennilega fram á sjónarsviðið, tæpu ári eftir að hin geisivinsæla útgáfa Felix Jaehn af laginu Cheerleader kom út og þremur árum eftir að upprunalega útgáfa lagsins leit dagsins ljós og komst lagið á toppinn á nánast öllum vinsældarlistum í heiminum og meðal annars hér á Íslandi.

Nú er stóra spurningin sú hvort að nýjasta lag OMI, Hula Hoop nái að feta í fótspor Cheerleader og verða jafn vinsælt, en bæði lögin má finna á fyrstu plötu söngvarans sem kemur út þann 16. október næstkomandi.