Jacob Plant - Reflections ásamt ExampleJacob Plant er 23 ára gamall plötusnúður sem kemur frá Bretlandi og hefur hann verið að sækja í sig veðrið að undanförnu og er nú farinn að búa til sín eigin lög eftir að hafa byrjað á því að gera endurgerðir eða remix af lögum eftir aðra.

Jacob hefur verið að fá mikla athygli upp á síðkastið og stefnir hann að gefa út sína fyrstu plötu á næsta ári, en nýjasta lagið frá honum nefnist Reflections og er það Example sem er með honum í laginu.