Þessir eldhressu Akureyringar fagna um þessar mundir tíunda starfsári sínu og eru mættir með glænýtt sumarlag sem heitir Gulir Dagar, en lagið má finna á sjöundu plötu strákanna sem kemur út síðar á árinu.

Það var Reynir Albert sem sá um tökur og gerð myndbandsins, en það má til gamans geta að þetta er fyrsta myndbandið sem Hvanndalsbræður senda frá sér.