Fyrsta tónlistarmyndbandið sem strákarnir í hljómsveitinni Valdimar senda frá sér en það er unnið af Kristni Guðmundssyni og er það byggt á verki hans, Borgar-sónata.

Lagið Yfir Borgina er önnur smáskífan sem kemur út af plötunni Um Sund sem hljómsveitin gaf út nú í október en áður höfðu þeir sent frá sér lagið Sýn.