One Direction - One Way Or Another (Teenage Kicks)Samtökin Comic Relief standa fyrir Degi Rauða Nefsins í Bretlandi sem fer fram þann 15. mars næstkomandi en samtökin safna fyrir bágstöddu fólki bæði i Bretlandi og Afríku, líkt og Unicef gerir hér á landi.

Strákarnir í One Direction tóku sig til og gerðu lag Rauða Nefsins í ár en það nefnist One Way Or Another (Teenage Kicks) og er það blanda af lögunum One Way Or Another með hljómsveitinni Blondie og Teenage Kicks sem The Undertones gerðu upphaflega.

Í staðin fyrir að láta fagfólk búa til rándýrt tónlistarmyndband tóku þeir það í sínar hendur og gáfu allan þann pening sem sparaðist í söfnunina.

Þess má geta að hljómsveitin FM Belfast gerði lag Dags Rauða Nefsins sem fór fram hér á landi á síðasta ári.