SkyBlu - Imagination ásamt Shwayze og The Small PotatoesÞað ætti ekki að hafa farið framhjá mörgum að SkyBlu, fyrrum meðlimur LMFAO, er á leiðinni til landins, en LMFAO gerðu garðinn frægan með lögum á borð við Party Rock og Sexy and I Know It sem voru með vinsælli lögum ársins 2011.

Skyler Austen Gordy eða SkyBlu eins og hann kallar sig er 27 ára gamall söngvari og dansari sem búsettur er í Los Angeles og hefur verið í bransanum frá árinu 2006.
Eftir að þeir félagar SkyBlu og Redfoo ákváðu að slíta samstarfi sínu snéri SkyBlu sér að sóloferli og gaf út sína fyrstu plötu, Rebel Music fyrr á þessu ári og er lagið Imagination sem var pródúserað af Mark Rosas nýjasta smáskífan af plötunni, en þú getur sótt plötuna í heild sinni frítt með því að smella hér.

SkyBlu kemur fram ásamt Mark Rosas, Chelsea Korka og 10 öðrum á tónleikum sem fara fram í Laugardalshöllinni þann 4. janúar næstkomandi, og er miðasala hafin á Miði.is