John Newman - Out Of My HeadSöngvarinn John Newman hefur verið í bransanum síðan árið 2004 en hlaut þó ekki almenna frægð fyrr en hljómsveitin Rudimental fékk hann í lið með sér við gerð lagsin Not Giving In sem varð gífurlega vinsælt.

Auknar vinsældir John urðu til þess að hann gaf út sína fyrstu plötu, Tribute í október síðastliðnum,  sem hefur fengið góðar viðtökur og er nú fjórða lagið af nýju plötunni komið út og nefnist það Out Of My Head.