Michael Jackson - Love Never Felt So Good ásamt Justin TimberlakeEins og við greindum frá í apríl er verið að leggja loka hönd að nýrri plötu með poppgoðsögninni Michael Jackson, en platan sem ber nafnið Xscape er væntanleg þann 9. maí næstkomandi.

Nýjasta smáskífan af plötunni nefnist Love Never Felt So Good og er um að ræða lag sem Michael Jackson og Paul Anka sömdu upphaflega árið 1983 og var það þá flutt af Johnny Mathis með miklum glæsibrag.
Fyrir útgáfu Xscape var hinsvegar ákveðið að gefa út lagið í flutningi Jacksons og var einnig gerð sérstök útgáfa með Jackson og sjálfum Justin Timberlake, en það var Timbaland sem pródúseraði lagið og kom því í nútímalegan búning.