Justin Timberlake á ÍslandiEinn vinsælasti söngvarinn í heiminum í dag, Justin Timberlake er væntanlegur til landsins og mun hann koma fram ásamt hljómsveit sinni, The Tennessee Kids í Kórnum í Kópavogi þann 24. ágúst næstkomandi.

Justin gaf út tvær plötur á síðasta ári, The 20/20 Experience og The 20/20 Experience – 2 of 2 en meðal laga á plötunum má nefna þau Take Back The Night, Suit and Tie og hið geysivinsæla Mirrors.

Tónleikarnir hér á landi eru hluti af The 20/20 Experience túrnum sem söngvarinn lagði upp í í nóvember síðastliðnum en hann mun ferðast um Ameríku, Asíu og Evrópu, og hefst miðasalan á tónleikana hér á landi þann 6. mars næstkomandi.